Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Aðalfundur 2020

13.08.2020:08:00 - 17:00

Aðalfundur Uppbyggingar sjálfsaga verður haldinn strax að ráðstefnu lokinni, fimmtudaginn 13. ágúst, kl. 16:00.

Á dagskrá eru venjulegum aðalfundarstörfum þar með talin kosning nýrrar stjórnar og formanns fyrir næstu tvö ár.

Dagskrá aðalfundar:
Skýrsla stjórnar
Skýrsla gjaldkera
Kosningar
Önnur mál

Kaffiveitingar og góður félagsskapur í boði. Vonumst til að sem flestir sjái sér fært að mæta.

Uppstilling stjórnar fyrir aðalfund 2020.
Annað hvert ár er boðað til kosninga í stjórn. Þeir sem hafa vilja til að starfa með stjórn Uppbyggingarfélagsins næstu tvö árin eru beðnir að hafa samband við uppstillingarnefnd og bjóða sig fram. Bylgja Baldursdóttir, aðstoðarskólastjóri í Sandgerði (bylgja@sandgerðisskoli.is) er í uppstillingarnefnd og tekur við fram-boðum fram að aðalfundi. En einnig er hægt að hafa samband við stjórnarmeðlimi. Það er afar mikilvægt fyrir félagið að hafa duglegt og gott fólk í framlínunni. Margar hendur vinna létt verk. Vertu með og bjóddu þig fram.

Details

Date:
13.08.2020
Time:
08:00 - 17:00