Hæfileikaskólinn eftir Elínu Ernu Steinarsdóttur

Við vekjum athygli á að Elín Erna Steinarsdóttir var að gefa út bókina Hæfileikaskólinn. Bókin fjallar um arnarunga sem vill fara í skóla. Í bókinni eru fallegar myndir, hún er fræðandi og eflir orðaforða. Bókin er hugsuð fyrir leikskóla og er upplögð til að nýta í uppbyggingarkennslu. Bókin styður við umræðu um fjölbreytileika, hæfileika, kjark, samvinnu, tilfinningar og styrkleika. Bókin er einnig heppileg fyrir þá sem eru að byrja að lesa því letrið í henni er mjög gott.
Upplýsingar um hvar hægt er að kaupa bókina má sjá hér að neðan.
Við óskum Elínu Ernu til hamingju með glæsilega bók.