Kæru uppbyggingafélagar
Velkomin til starfa skólaárið 2026-2027. Stjórnin sem kosin var á aðalfundi s.l. vor hefur tekið til
starfa og við erum full tilhlökkunar að vinna með ykkur.
Eftirfarandi aðilar eru í stjórn:
Guðbjörg M. Sveinsdóttir formaður,
Sveinbjörn M. Njálsson gjaldkeri,
Linda Hrönn Steindórsdóttir ritari,
Fanney D. Halldórsdóttir meðstjórnandi,
Anna Svanhildur Daníelsdóttir meðstjórnandi og vefstjóri,
Laufey Kristjánsdóttir varamaður,
Jóna Benediktsdóttir varamaður.
Félagið hefur í fyrsta skiptið gert þjónustusamning við sveitarfélag. Gerður hefur verið
samningur við Hafnarfjarðarbæ um námskeiðahald, ráðgjöf og fræðslu fyrir þá leik- og
grunnskóla sem eru að vinna með uppbyggingu í bæjarfélaginu. Þetta eru afar ánægjuleg
tímamót og koma uppbyggingakennarar til með að vinna að þessu verkefni í samvinnu við
skólastjórnendur viðkomandi skóla í Hafnarfirði. Með þessu móti verður hægt að veita
handleiðslu, ráðgjöf og miðla þekkingu til stjórnenda, leiðtoga og starfsfólks með enn
markvissara hætti. Það verður ánægjulegt að fylgja þessu verkefni úr hlaði með Hafnfirðingum.
Á vor- og haustönn hafa rúmlega þúsund manns sótt fræðslu á vegum félagsins. Um er að ræða
námskeið og styttri upprifjunar- eða fræðslufundi. Uppbyggingakennarar félagsins hafa séð um
fræðsluna og færum við þeim bestu þakkir fyrir vel unnin störf og óskum öllum þeim sem eru að
hefja störf í uppbyggingunni alls hins besta.
Sérstaklega skal þó minnst á námskeið félagsins í Brighton sem 100 manns sóttu. Það var
einstaklega skemmtilegt að fara í annað umhverfi og fá uppbyggingakennara frá Íslandi, Kanada
og Bandaríkjunum. Gaman var að taka þátt í umræðum með þátttakendum og kennurum, miðla
reynslu og ræða nýjar hugmyndir. Allir gátu stækkað tengslanetið sitt og vonandi skilar það
öllum opnari leiðum til samstarfs.
Eftir áramótin stendur til að halda námskeið fyrir leiðtoga í skólum eða svo kallað Fasilitator
(leiðtoga) námskeið. Judy Anderson kemur til með að kenna á þessu þriggja daga námskeiði.
Leiðtogar eru þeir aðilar sem stýra starfinu innan hvers skóla. Þar sem um lítinn hóp þátttakenda
verður að ræða þá kemur stjórnin til með að hafa samband við alla skólastjóra styrktarskóla
varðandi fulltrúa á námskeiðið. Hringt verður í skólastjóra á næstu vikum.
Við vekjum athygli á síðunni: Sunnuhvoll Útgáfa en þar er verið að selja bækur sem Magni
Hjálmarsson hefur verið að þýða. Þar má t.d. fá bókina Uppeldi til ábyrgðar eftir Diane Gossen
og bók Dr. William Glassers, Valfrelsi (Choice Theory).
Einnig vekjum við athygli á nýja efninu á heimasíðunni:
➢ Grunnstoðir í námi, en það er verkefnabanki þar sem unnið er með samspil uppeldi til
ábyrgðar, leiðsagnanáms og vaxandi hugarfars. Efnið er eftir þær Ernu Ingibjörgu
Pálsdóttur og Hildi Karlsdóttur
➢ Uppeldi til ábyrgðar – kennsluefni fyrir 1.-2. bekk og 3.-4. bekk. Verkefnin eru eftir Hildi
Karlsdóttur.
Við óskum ykkur alls hins besta á þessum vetri og hvetjum ykkur til að hafa samband ef
spurningar vakna um uppbygginguna.
Fyrir hönd stjórnar Uppbyggingar sjálfsaga-uppeldi til ábyrgðar
Guðbjörg M. Sveinsdóttir, formaður
[email protected]
Heimasíða: www.uppbygging.is
Uppbygging sjálfsaga, póstfang: [email protected]