Frétt 23.11.2026
Uppeldi til ábyrgðar – nýir skólar í hóp félags- styrktar- þátttökuskóla.
Á þessu ári 2026 sem liðið er hafa 3-4 nýir skólar bæst í hóp okkar og eru þegar komnir á stað í innleiðingu Uppbyggingar sjálfsaga / uppeldi til ábyrgðar í starfi skólanna sem og hefur nettengill þeirra og nafn verið birt á vef félagsins um Styrktarskóla https://uppbygging.is/styrktarskolar/ og staðsetning þeirra á landakorti félagsins sem einnig má finna á sömu blaðsíðu á vef félagsins.
Þetta eru:
Leikskólinn Hvammur, Hafnarfirði
Leikskólinn Tjarnarás, Hafnarfirði
Kirkjubæjarskóli á Síðu, Kirkjubæjarklaustri sem er nú samrekinn leik- og grunnskóli.
Einnig uppgötvaðist að Leikskólinn Hálsaskógur, Reykjavík hafði fallið út af skrá félagsins en hefur verið í fullu starfi til margra ára. Þar höfum við endurnýjað skráninguna og haldið fræðslufundi á þessu ári.
Félagið Uppbygging sjálfsaga býður þessum skólum hjartanlega velkomna í öflugan hóp félags- styrktar- og þátttökuskóla okkar.
Stjórn félagsins hefur ákveðið að hverjum nýjum þátttökuskóla skuli færður félagsfáni okkar hvort heldur er inni- eða útifáni (val) sem inngönguvottur til þess að flagga og vera sýnileg í umhverfini sínu og starfi.
Þess má einnig geta að í öllum þeim félags- styrktar- og þátttökuskólum Uppbyggingar sjálfsaga starfa um 34% allar 1-16 ára barna á Íslandi eða um 23.000 börn ef miðað er við að í hverjum árgangi séu um 4.200 börn.
Félagið Uppbygging sjálfsaga og uppbyggingarkennara á þess vegum hafa á árinu 2026 haldið formleg námskeið í Uppbyggingu sjálfsaga, einstaka fræðslufundi og styttri námskeið fyrir um 1000 starfsmenn leik- og grunnskóla frá Íslandi hvort heldur er innanlands eða á erlendri grundu ( Brighton, England vorið 2026).
Með félagskveðjum