Föstudaginn, 6. október og laugardaginn, 7. október verða Fanney D. Halldórsdóttir og Elín Yngvadóttir með námskeið í Reykjavík.
Kynnt verða helstu grundvallaratriði uppbyggingarstefnunnar, hugmyndafræði og aðferðir.
Áhersla verður lögð á að fara vel í hugmyndafræðina og auka færni þátttakenda í að nýta þessar vinnuaðferðir í daglega starfi með börnum. Námskeiðið er sérstaklega ætlað starfsfólki leik- og grunnskóla.
Skráning á [email protected]
Með skráningu þarf að fylgja: Fullt nafn, kennitala, netfang og upplýsingar um greiðanda námskeiðsgjaldsins (kennitala og heimilisfang).
Nánari upplýsingar veita: Elín Yngvadóttir, [email protected] og Sveinbjörn Markús Njálsson, [email protected]