Grunnnámskeið Uppbygging I – 10. og 11. ágúst 2026

Grunnnámskeið – Uppbygging I verður haldið 10. og 11. ágúst 2026.
Kynnt verða helstu grundvallaratriði uppbyggingarstefnunnar, hugmyndafræði, aðferðir og verkefni. Námskeiðið er fyrir starfsfólki leik-, grunn- og framhaldsskóla.

Staðsetning: Álftanesskóli : Námskeiðið hefst kl. 9:00 og til kl. 16:00 báða dagana.

Leiðbeinendur: Fanney Dóróthe Halldórsdóttir og Elín Yngvadóttir, leiðbeinendur í Uppbyggingu sjálfsaga.

Skráning fer fram á vef félagsins: https://uppbygging.is/skraning-a-namskeid/ fyrir 20. júní 2026
Með skráningu þarf að fylgja: Fullt nafn, kennitala, netfang og upplýsingar um greiðanda námskeiðsgjaldsins (kennitala og heimilisfang).

Verð 48.000.- kr. með námskeiðsgögnum, hressingu og léttum hádegisverði.

Meginatriði Uppeldis til ábyrgðar – Uppbygging sjálfsaga er að kenna börnum og unglingum sjálfsaga og ýta undir gott sjálfstraust. Lögð er áhersla á jákvæð samskipti, gagnkvæma virðingu og góðan skólabrag. Uppbygging sjálfsaga hvetur hvern og einn til að taka ábyrgð á eigin orðum og gerðum. Nemendur læra að þekkja grunnþarfir sínar og taka tillit til samferðamanna sinna.

Nánari upplýsingar veita:
Guðbjörg M. Sveinsdóttir, [email protected]
Sveinbjörn Markús Njálsson, [email protected]