Höfuðborgarsvæðið – (staðsetning auglýst síðar)
Grunnnámskeið – Uppbygging I verður haldið 11. og 12. ágúst 2025 á höfuðborgarsvæðinu. Kynnt verða helstu grundvallaratriði uppbyggingarstefnunnar, hugmyndafræði, aðferðir og verkefni. Námskeiðið er ætlað starfsfólki leik-, grunn- og framhaldsskóla.
Námskeiðið hefst kl. 9:00 og verður til kl. 16:00 báða dagana.
Leiðbeinendur eru: Guðlaug Erla Gunnarsdóttir og Hildur Karlsdóttir.
Skráning fer fram á vef félagsins: https://uppbygging.is/skraning-a-namskeid/ og á netfanginu uppbygging@uppbygging.is fyrir 15. júní n.k.
Með skráningu þarf að fylgja: Fullt nafn, kennitala, netfang og upplýsingar um greiðanda námskeiðsgjaldsins (kennitala og heimilisfang).
Verð 45.000.- kr. með námskeiðsgögnum, hressingu og léttum hádegisverði.
Meginatriði Uppeldis til ábyrgðar – Uppbygging sjálfsaga er að kenna börnum og unglingum sjálfsaga og ýta undir gott sjálfstraust. Lögð er áhersla á jákvæð samskipti, gagnkvæma virðingu og góðan skólabrag. Uppbygging sjálfsaga hvetur hvern og einn til að taka ábyrgð á eigin orðum og gerðum. Nemendur læra að þekkja grunnþarfir sínar og taka tillit til samferðamanna sinna.
Nánari upplýsingar veita: Guðbjörg M. Sveinsdóttir, gudbjorgmsv@gmail.com og Sveinbjörn Markús Njálsson, sveinbjorn.njalsson@gmail.com