Opið námskeið í Uppbyggingu I – sérsniðið fyrir leikskóla

Leikskólastarfið 17. Janúar 2024

Opið námskeið í Uppbygging 1 – sérsniðið fyrir leikskóla

Endurmenntun og kynning á  vinnu okkar  í leikskólum með Uppbyggingu sjálfsaga – uppeldi til ábyrgðar

Grunnnámskeið 1. (Restitution I) sérsniðið fyrir leikskóla verður haldið 17. janúar 2024  í Tónmenntasal Álftanesskóla,  Álftanesi í samvinnu við  leikskólana Holtakot og Krakkakot á Álftanesi og leikskólann Arnarsmára í Kópavogi.

 Námskeiðið er fyrir starfsfólk leikskóla og einstaklinga sem vinna með hugmyndafræði og vinnuaðferðir Uppbyggingar sjálfsaga.

Farið verður yfir hugmyndafræði og vinnuaðferðir Uppbyggingar sjálfsaga ( Restitution – Self discipline) og tekin dæmi um vinnu með starfsmönnum og nemendum í leikskólum.

Lögð er áhersla á jákvæð samskipti, gagnkvæma virðingu og góðan skólabrag.

Námskeiðið 17. janúar 2024,  kl. 9:00  til 16:00

Hvar : Í Tónmenntasal Álftanesskóla,  Álftanesi .

Leiðbeinendur eru: Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, Guðbjörg M.Sveinsdóttir

Verð: 25.000 kr. með námskeiðsgögnum, hádegisverði og kaffihressingu.  

Ef fleiri en 6 koma frá sama skóla er greitt fyrir 5 einstaklinga

Skráning á vef félagsins fyrir 10.janúar 2024

Með skráningu þarf að fylgja: Fullt nafn, kennitala, netfang og upplýsingar kennitölu greiðanda námskeiðsgjaldsins (kennitala og heimilisfang).

Sjá hér.

Nánari upplýsingar veita: Guðbjörg M. Sveinsdóttir, gudbjorgmsv@gmail.com og Sveinbjörn Markús Njálsson, sveinbjorn.njalsson@gmail.com    

Námskeið leikskólastarfið 17.01.2024