Félagið uppbygging sjálfsaga var stofnað 28. mars 2008 í Álftanesskóla. Stofnfundinn sóttu um 60 manns.
Upphaf Uppbyggingarstefnunnar á Íslandi eins og hún var fyrst nefnd (Restitution- Self discapline) má rekja til fyrsta námskeiðs sem haldið var hér á landi með Diane Gossen í Foldaskóla, Grafarvogi vorið 2000. Frumkvæðið að því höfðu þeir Ragnar Gíslason skólastjóri og Magni Hjámarsson námsráðgjafi í Foldaskóla. Forsenda þessa var að þeir félagar leituðu leiða til mótvægis við atferlismótunarvinnu sem þá var ríkjandi í allri vinnu með börnum og ungmennum í skólastarfinu og um aga og viðurlög í formi umbunar eða refsingar. Með nýrri aðalnámskrá grunnskóla 1998 var skólum ætlað að setja fram og rökstyðja með hvaða hætti og hvernig skólareglur séu settar fram og unnið eftir þeim til að efla og styrkja uppbyggjandi og jákvæðan skólabrag. Með atbeina dr. Grétars Marinóssonar við Kennaraháskóla Íslands leituðu þeir til Diane Gossen (https://realrestitution.com/) sem hafði sett fram ákveðna hugmyndafræði og vinnuaðferð um innri hvatningar til jákvæðra samskipta og uppbyggjandi úrlausnar ágreinings sem kom vorið 2000 og hélt hér fyrsta námskeiðið.
Árið 2006 voru 10 grunnskólar á Íslandi vinnandi með Uppeldi til ábyrgðar þ.e. Álftanesskóli, Grunnskóli Grindavíkur, Garðaskóli í Garðabæ, Giljaskóli á Akureyri, Grunnskóli Borgarness, Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit, Grunnskóli Ísafjarðar, Grunnskólinn á Grenivík, Grundaskóli á Akranesi og Brúarskóli í Reykjavík.
Árið 2025 eftir 25 ár með Uppbyggingu sjálfsaga á Íslandi starfa um 110 leik- og grunnskólar með og eftir vinnuaðferðum Uppbyggingar sjálfsaga og eru sérstakir þátttöku- og styrktarskólar félagsins. Í þessum 110 leik- og grunnskólum starfa um 23.100 börn eða um 34% allra barna frá 1 til 16 ára aldurs.
Mest allt starf félagsins Uppbyggingar sjálfsaga er unnið í sjálfboðavinnu. Félagsaðild er einstaklingsbundin en skólar og aðrar stofnanir sem vinna með og eftir starfi Uppbyggingar sjálfsaga leggja til árlega þátttöku-, styrktar- og höfundarréttar-þóknun sem miðast við fjölda t.d. nemenda í viðkomandi skóla (sjá stofnbréf ).
Fljótlega eftir stofnun félagsins var ákveðið að hanna vefsíðu fyrir félagið og starf þess www.uppbygging.is . Þar er m.a. efni eftir kennara til afnota fyrir starfsmenn, styrktarskóla og fleiri.
Einnig heldur félagið úti fésbókarsíðu https://www.facebook.com/profile.php?id=100057400010214.
Félagið hefur haldið fjölda námskeiða innanlands og erlendis hvort heldur er með íslenskum leiðbeinendum eða erlendum.
Árlega sækja um 1200-1500 starfsmenn leik- og grunnskóla fræðslufundi og formlega námskeið á vegum félagsins. Félagið skipuleggur og aðstoðar hópa eða skóla að sækja námskeið erlendis í Uppbyggingu sjálfsaga (Restitution- Self discapline).
Árið 2012 þann 5. desember samþykkti stjórn félagsins að kaupa útgáfurétt og bókalager að ákveðnum titlum og bæklingum af Útgáfufélaginu Sunnuhvoll, en það félag átti Magni Hjálmarssons sem þýtt hafði og gefið út frá árinu 2000 nokkrar grunnbækur og og styttri verkefnahefti eftir Diane Gossen, samstarfólk hennar og einnig setti hann saman og gaf út verkefnahefti og vinnubæklinga í samstarfi við kennara hér innanlands.
Félagið hefur síðan jafnt og þétt fjölgað bókum og endurútgefið nokkra bókatitla og bæklinga. Félagið hefur einnig ýmislegt annað efni til sölu s.s. fána með merki félagsins, margnota taupoka og lyklabönd sem er sjáanlegt á vefsíðu félagsins.
Allt starf félagsins snýst um að aðstoða, auðvelda og styðja starfsmenn í uppeldis- og fræðslumálum við vinnu sína sem og að efla og styrkja starfsanda og jákvæða vinnustaðamenningu.
(texti: Sveinbjörn Markús Njálsson)
