Uppbygging í Englandi – Brighton 10.-12. júní 2026

Uppbygging í Englandi – Brighton 10. – 12. júní 2026
SKRÁNING fyrir 17. ágúst 2025 Á NÁMSKEIÐ A, B EÐA C

Boðið verður upp á þrjú námskeið í Brighton 10. – 12. júní 2026.
Námskeiðið og gisting verður á Leonardo Royal Hotel í Brighton sem staðsett er alveg við ströndina.
Námskeiðin eru styrkhæf frá Kennarasambandi Íslands og fleiri stéttarfélögum.
Uppbygging sjálfsaga (e. Restitution) er hugmyndafræði sem styður við sjálfsaga, ábyrgð og
virðingu. Með aðferðum Uppbyggingar læra börn, unglingar og fullorðnir að taka ábyrgð á eigin
orðum og gjörðum, styrkja sjálfstraust sitt og leita leiða til að mæta eigin grunnþörfum án þess að
ganga á rétt annarra. Þessi hugmyndafræði nýtist jafnt fullorðnum sem börnum, í einkalífi og á
vinnustöðum.

  • Námskeiðsgjald er kr. 85.000,- innifalið er kennsla í 2 daga, kaffi og meðlæti fyrir og eftir
    hádegi, hádegisverðir, ferðir til/frá flugvelli (Gatwick), námskeiðsgögn. Kennslan verður frá
    kl. 9:00 – 16:00.
  • Verðdæmi:
    Hótel m.v. 2ja manna herbergi í 4 nætur pr. mann 70.000,-
    Flug – áætlað verð, tilboð birt síðar 70.000,-
    Samtals áætlaður kostnaður 225.000,-

Skráðum þátttakendum verður sent valblað síðar í sumar varðandi fjölda gistinátta, herbergjaskipan og flug, þegar verð í flug liggur fyrir. Hægt verður að velja ýmsa möguleika varðandi gistingu og flug. Mögulegt er að vera 3 eða 4 nætur og gista í eins manns, tveggja manna eða þriggja manna herbergi. Þátttakendur geta líka séð sjálfir um flugfarið. Ef maki kemur með getur viðkomandi farið inn í flug- og hótelpakkann líka þó ekki verði um þátttöku á námskeiði að ræða.

Námskeið 10. – 11. júní
A – Lifandi Uppbygging
Joel Shimoji hefur unnið við menntamál í yfir 30 ár. Hann hefur reynslu af bekkjarkennslu, stærðfræðikennslu, íþróttakennslu, stoðþjónustu við nemendur og stjórnun. Hann nýtir uppbygginguna til að byggja upp styrkleika og sjálfsstæði nemenda auk þess að skapa jákvæð samskipti.
Joel Shimoji verður með námskeið um Restitution in the Classroom fyrir kennara/starfsfólk sem vinnur mest með eldri nemendur ( ca. 12 – 16 ára).

Lifandi uppbygging – Þetta tveggja daga námskeið er ætlað þeim sem hafa lokið við Restitution 1
(grunnnámskeið) og hafa verið að nýta uppbygginguna í skólastarfi/í vinnu. Áherslan verður á hagnýta vinnu og hvernig er hægt að tengja þessa vinnu við námið og námskrár. Þátttakendur koma til með að læra margskonar leiki og hreyfingu/virkni auk þess að vinna með bókmenntir og ýmsa miðla til að styðja við skilning nemenda.
Á námskeiðinu verður líka rifjaðir upp helstu þættir Restitution (Uppbygging) og kynning á Control Theory (Stjórnunarkenning), hversu öflug sálfræði er á bak við Uppbygginguna. Þátttakendur fá líka tækifæri til að taka þátt og vera virkir í kennslustundunum.
Námskeiðið verður á ensku.

Námskeið 10. og 12. júní
B – Uppbygging fyrir alla
Elín Yngvadóttir er leiðbeinandi í Uppbyggingu og námsbrautastjóri á mannauðssviði Isavia. Hún hefur verið Restitution leiðbeinandi frá árinu 2013 og haldið tugi námskeiða víða um land, auk kynninga í Noregi og Finnlandi. Hún hefur setið í stjórn félagsins Uppbygging sjálfsaga og tekið þátt í skipulagi námskeiða, ráðstefna og alþjóðlegs samstarfs. Elín er með tæplega 20 ára reynslu sem grunnskólakennari og skólastjórnandi.
Fanney D. Halldórsdóttir er leiðbeinandi í Uppbyggingu og sviðsstjóri mennta- og lýðheilsusviðs Hafnarfjarðar. Hún hefur haldið fjölda Uppbyggingar I námskeiða á Íslandi og erlendis (m.a. í Noregi,
Þýskalandi og Wales) síðan 2013. Hún hefur sjálf innleitt aðferðirnar í grunnskóla sem skólastjóri og
unnið að ráðgjöf og þróunarvinnu með skólum víðs vegar um land. Hún situr í stjórn félagsins Uppbygging sjálfsaga og hefur yfir 20 ára reynslu í menntakerfinu.
Elín og Fanney verða með námskeið um grunnatriði Uppbyggingar sjálfsaga – uppeldi til ábyrgðar. Á
þessu námskeiði verður farið í grunn kenninganna og hvernig kennarar geta nýtt aðferðir uppbyggingar fyrir sig sjálfa og nemendur sína. Námskeiðið verður á íslensku.
Uppbygging fyrir alla er námskeið þar sem þátttakendur kynnast meginhugmyndum og aðferðum Uppbyggingar sjálfsaga í gegnum fræðslu, samræður og hagnýta vinnu. Leiðbeinendur deila reynslu af innleiðingu í íslenskum skólum og bjóða þátttakendum að skoða hvernig nálgunin getur eflt samskipti, skólabrag og faglegt samstarf.
Þátttakendur fá tækifæri til að:

  • Kynnast grunnhugmyndum Uppbyggingar: sjálfsaga, valfrelsi, ábyrgð og uppbyggingu.
  • Skoða hvernig grunnþarfir hafa áhrif á hegðun og hvernig við getum brugðist við á
    uppbyggilegan hátt.
  • Þjálfa sig í að beita aðferðum sem styðja við nemendur án refsinga eða skamma.
  • Vinna með dæmi og aðstæður úr eigin skólastarfi og þróa hagnýtar lausnir.
  • Greina hvernig sáttmálar, viðmið og sameiginleg ábyrgð styrkja skólasamfélagið.

Námskeiðið hentar vel öllu fagfólki sem starfar með börnum og unglingum s.s. kennurum, skólastjórnendum, námsráðgjöfum, þroskaþjálfum, stuðningsfulltrúum og öðrum sem styðja við nám
og velferð barna og unglinga í leik- og grunnskólum.

Markmið námskeiðsins er að efla færni þátttakenda í að byggja upp jákvæða menningu í skóla og fræðast um aðferðir sem stuðla að sjálfstjórn, innri ábyrgð og jákvæðum samskiptum. Námskeiðið styður þátttakendur í að skapa aðstæður þar sem nemendum finnst þeir tilheyra og geta haft áhrif. Takast á við hegðun á lausnamiðaðan hátt. Nýta orðræðu sem eflir sjálfsmynd og stuðlar að heilbrigðum samskiptum. Byggja upp sameiginlegan sáttmála í skólasamfélaginu. Námskeiðið byggir á virku námi, umræðum og samvinnu. Þátttakendur eru hvattir til að tengja efnið við eigið starf og koma með spurningar og/eða reynslusögur.

 C – Námskeið 11. og 12. júní
Heather Campbell hefur yfir 30 ára reynslu sem kennari bæði almennur bekkjarkennari og hefur mikla reynslu af að vinna með nemendum í áhættuhópum og nemendum með sérþarfir. Heather hefur verið leiðbeinandi í uppbyggingu í sínum skóla og sínu skólaumdæmi. Hún nýtir stefnuna jafnt fyrir nemendur, samstarfsmenn og fyrir sig sjálfa.
Heather heldur námskeið um Restitution in the Classroom fyrir kennara/starfsfólk sem vinnur mest með yngri nemendur (ca. 3-12 ára). Heather mun fara í leiðir fyrir kennara til að kenna þessum aldurshópi um notkun stefnunnar. Farið verður í aðferðir til að þjálfa einstaklinga í notkun stefnunnar bæði fyrir sig persónulega og í samskiptum við aðra. Heather hefur unnið með nemendum með einhverfu, ADHD og nemendum með hegðunarerfiðleika og ætlar hún að kynna fyrir starfsfólki hvernig uppbyggingin hjálpar til í vinnu með nemendum sem þurfa stoðþjónustu vegna sérþarfa.
Námskeiðið verður á ensku.

SKRÁNING fyrir 17. ágúst 2025 Á NÁMSKEIÐ A, B EÐA C