Uppeldi til ábyrgðar – Uppbygging sjálfsaga I á Álftanesi í ágúst

Félagið Uppbygging sjálfsaga í samvinnu við Álftanesskóla auglýsir byrjendanámskeið í Uppeldi til ábyrgðar –uppbygging sjálfsaga I í Álftanesskóla dagana 11. – 12. ágúst 2014.
Námskeiðið hefst kl. 9:00 báða dagana og stendur til kl. 16:00.
Áhersla er lögð á að fara vel í hugmyndafræðina og auka færni þátttakenda í að nýta þessar vinnuaðferðir í daglega starfi með börnum. Námskeiðið er ætlað starfsfólki leik- og grunnskóla.
Meginatriði Uppeldis til ábyrgðar er að kenna börnum og unglingum sjálfsaga og ýta undir gott sjálfstraust. Lögð er áhersla á jákvæð samskipti, gagnkvæma virðingu og góðan skólabrag. Uppbygging sjálfsaga hvetur hvern og einn til að taka ábyrgð á eigin orðum og gerðum. Nemendur læra að þekkja grunnþarfir sínar og taka tillit til samferðamanna sinna.

Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Guðlaug Erla Gunnarsdóttir og Hildur Karlsdóttir. Báðar hafa þær réttindi frá Diane Gossen til að kenna þessi fræði og langa reynslu í að nýta þessar starfsaðferðir í skólastarfi og uppeldi.

Staður: Álftanesskóli
Tími: 11. – 12. ágúst kl. 9:00 – 16:00.
Verð: kr. 24.000. Innifalið eru námskeiðsgögn, matur og kaffi.
Starfsmenn Álftanesskóla mæta á vegum skólans og án greiðslu.
Skráning fer fram á netfanginu markus@alftanesskoli.is fyrir 20. júní 2014.