Grunnstoðir í námi

Nýtt kennslu- og fræðsluefni á vef félagsins.

Út er komið á vef félagsins www.uppbygging.is fræðslu- og kennsluefni eftir Hildi Karlsdóttur grunnskólakennara og leiðbeinenda í Uppbyggingu sjálfsaga. Um er að ræða:

  1. Kennslubók í Uppeldi til ábyrgðar í 1. – 2. bekk grunnskóla
  2. Kennslubók í Uppeldi til ábyrgðar í 3. – 4. bekk grunnskóla

Kennslubækurnar eru hér á vef félagins: https://uppbygging.is/namsefni-grunnskolar-yngra-stig/ og einnig hér https://uppbygging.is/baekur/

 

  1. Sjálfsþekking og sjálfsstjórn – vinnubók sem er hugsuð fyrir sérkennslu / stuðningskennslu með áherslu á Uppeldi til ábyrgðar,
    Vaxandi hugarfar og Leiðsagnarnám/-mat

Vinnubókina má finna hér á vef félagins: https://uppbygging.is/baekur/ og einnig hér https://uppbygging.is/namsefni-almennt/

 

 

  1. Á forsíðuvef félagsins birtist sérstök fræðslusíða Grunnstoðir í námi sem er sjálfstæð vefsíða um þrjár grunnstoðir í námi Uppeldi til ábyrgðar, Leiðsagnarnám og Vaxandi hugarfar.

Hér hafa höfundar efnis þær Hildur Karlsdóttir grunnskólakennari  Álftanesskóla og leiðbeinandi í Uppbyggingu sjálfsaga, Erna Ingibjörg Pálsdóttir f.v. skólastjóri Álftanesskóla og höfundur bókarinnar ,,Fjölbreyttar leiðir í námsmati. Að meta það sem við viljum að nemendur læri (2019, IÐNÚ)“, ásamt Önnu Svanhildi Daníelsdóttur vefhönnuði, leik- og grunnskólakennara og aðstoðarleikskólastjóra á leikskólanum Tjarnarási í Hafnafirði, samið, þýtt og einnig aflað viðbótarefnis sem og stuðningsefnis við þessar þrjár grunnstoðir í námi með góða vísan til Aðalnámskrár leik- grunn- og framhaldsskóla.

Efnið samanstendur af fræðslu, verkefnum og tenglum við vefsíður og myndbönd um Uppeldi til ábyrgðar, Vaxandi hugarfar og Leiðsagnarnám/ -mat og hvernig þessar grunnstoðir tengjast og styðja hver aðra við uppbyggjandi og farsælt nám.