Ágætu félagar
Vorið er komið og grundirnar gróa, eins og segir í texta Jóns Thoroddsen. Á vorin lítum við yfir farinn veg og hugsum hvað gekk vel í skólastarfinu og hvað við þurfum að skoða betur, breyta og laga fyrir næsta vetur. Þetta er eitt af því skemmtilega við skólastarfið, það er lifandi og við breytumst og nemendur okkar líka. Nýjir nemendur og nýtt starfsfólk bíður handan við sumarið og við þurfum að hjálpast að við að þjálfa þetta fólk í aðferðum Uppbyggingar sjálfsaga – uppeldi til ábyrgðar.
Leiðbeinendur félagsins hafa á þessu skólaári farið um víðan völl með námskeið í Uppbyggingu I og II. Svo hafa verið haldnir styttri upprifjunarfundir, kynningarfundir o.fl. allt eftir ykkar þörfum og óskum. Við fögnum því að fleiri skólar hafa bæst í hóp uppbyggingarskóla og þá má sjá myndrænt á heimasíðu félagsins Uppbygging sjálfsaga – Uppeldi til ábyrgðar – Google Earth
Þetta kort væri gaman að nýta ef þið eigið leið um landið næsta vetur. Þá gæti verið gaman fyrir ykkur að fá að kíkja í heimsókn í uppbyggingaskóla og kynnast starfinu þar. Ég er viss um að það verður vel tekið á móti ykkur og við getum alltaf lært af hvert öðru.
Skólar og sveitarfélög hafa nú þegar byrjað að panta leiðbeinendur til að vera með fræðslu í ágúst þannig að ef þið hafið hugsað ykkur að fá námskeið eða fræðsluerindi þá endilega hafið samband sem fyrst.
Félgið hefur auglýst grunnnámskeið 10.-11. ágúst 2026 haldið í Álftanesskóla sjá auglýsingu á vef félagins https://uppbygging.is/grunnnamskeid–uppbygging–i–10–og–11–agust–2026/
Aðalfundur félagsins var haldinn 13. apríl s.l. í Engidalsskóla. Fundarstjóri var Elín Yngvadóttir. Kosin var ný stjórn en hana skipa: Guðbjörg M. Sveinsdóttir formaður, Fanney D. Halldórsdóttir, Linda Hrönn
Steindórsdóttir, Anna Svanhildur Daníelsdóttir og Sveinbjörn M. Njálsson gjaldkeri. Varamenn voru kosnir: Laufey Kristjánsdóttir og Jóna Benediktsdóttir. Skoðunarmenn reikninga: Bylgja Baldursdóttir og Margrét Halldórsdóttir. Þeir sem eru nýjir í stjórn eru: Anna Svanhildur en hún er aðstoðarleikskólastjóri á Tjarnarási í Hafnarfirði, Laufey er aðstoðarskólastjóri á Seltjarnarnesi og Margrét er skólastjóri í Engidalsskóla í Hafnarfirði
Við bjóðum nýtt fólk innilega velkomið og þökkum þeim sem fara úr stjórn kærlega fyrir góð störf í þágu félagsins.
Á aðalfundi var skýrsla stjórnar og reikningar félagsins samþykktir. Einnig var samþykkt að félagsgjald einstaklinga og styrktarskóla yrði óbreytt. Samþykkt greiðsla til formanns og gjaldkera. Engar lagabreytingar lágu fyrir fundinum.
Eftir hefðbundin aðalfundarstörf voru flutt nokkur áhugaverð erindi og þökkum við neðantöldum aðilum kærlega fyrir erindin.
Erna Ingibjörg Pálsdóttir og Hildur Karlsdóttir kynntu verkefnið Grunnstoðir í námi. Um er að ræða verkefnabanka þar sem er unnið er með samspil uppeldi til ábyrgðar, leiðsagnarnáms og vaxandi hugarfars. Anna Svanhildur Daníelsdóttir hefur umsjón með vefútgáfunni. Verkefnabankinn er kominn á heimasíðu félagsins undir hnappnum ,,Grunnstoðir í námi“
https://sites.google.com/view/grunnstodirinami?usp=sharing&fbclid=IwY2xjawRIrwBleHRuA2FlbQIx MABicmlkETBVWjZsNWd2akJUb3dvWnVtc3J0YwZhcHBfaWQQMjIyMDM5MTc4ODIwMDg5MgABHiY mijBQ–pNBzXFgcoJ6nd31CmabBnnE1rdEof04a7VIhf3FjEcqB–tFkcu__aem_1zYf8aTdGNwitk9QlHIUgw
Hildur Karlsdóttir sagði frá kennsluefni sem er komið inn á heimasíðu félagsins: https://uppbygging.is/namsefni–grunnskolar–yngra–stig/ og https://uppbygging.is/baekur/ Efnið er annars vegar kennslubækur í Uppeldi til ábyrgðar fyrir 1.-2. bekk og 3.-4. bekk. Hins vegar er efnið Sjálfsþekking og sjálfsstjórn sem er vinnubók hugsuð fyrir sérkennslu/stuðningskennslu með áherslu á Uppeldi til ábyrgðar, Vaxandi hugarfar og Leiðsagnarnám/-mat.
Margrét Halldórsdóttir sagði frá öflugu uppbyggingastarfi í Engidalsskóla og þá sérstaklega hvernig þau hafa unnið með uppbygginguna með starfsfólki.
Rúmlega 100 manns eru að fara til Brighton á námskeið núna í júní. Boðið verður upp á þrjú námskeið, Uppbygging með eldri nemendum, grunnnámskeið og uppbyggingu með yngstu nemendunum. Það verður örugglega skemmtilegt fyrir hópinn að hittast, skiptast á skoðunum og hafa gaman.
Við hvetjum ykkur til að vera dugleg að segja frá árangri, verkefnum og þeim áhrifum sem stefnan hefur á börn og fullorðna í skólunum. Nemendur ykkar útskrifast með frábær verkfæri í verkfærakistunni sinni. Verkfæri sem þeir hafa fengið þjálfun í að nota og geta nýtt sér í framtíðinni til að takast á við áskoranir í lífi og starfi.
Útgáfufélagið Sunnuhvoll hefur gefið aftur út bókina Uppeldi til ábyrgðar o.fl. bækur sjá: Vörur – Sunnuhvoll
Við vonum að starfið hafi gengið vel í vetur með nemendum og samstarfsfólki og þið eigið ánægjulegt sumar fram undan.
Fyrir hönd stjórnar Uppbyggingar sjálfsaga
Guðbjörg M. Sveinsdóttir, formaður [email protected]
Heimasíða: www.uppbygging.is
Uppbygging sjálfsaga, póstfang: [email protected]